Samey sjálfvirknilausnir Samey

Meginhlutverk Sameyjar er að bjóða sérhæfða þjónustu til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja með aukinni sjálfvirkni og bættu rekstraröryggi. Samey var stofnað árið 1989 og hefur frá þeim tíma þjónað fyrirtækjum til lands og sjávar með ólíkar þarfir. Meðal helstu viðskiptavina Sameyjar eru mörg af stærstu og virtustu fyrirtækjum á Íslandi, en auk þess hefur Samey þjónað fyrirtækjum erlendis.

Samey býður gott vöruúrval af hágæðabúnaði frá mörgum af virtustu framleiðendum á sínu sviði. Samey er með hönnunar- og framleiðsludeild og skilar heildarlausnum, allt frá þróun hugmyndar til gangsetningar. Samey sér í vaxandi mæli um hönnun og framleiðslu stýribúnaðar fyrir tækjaframleiðendur og veitir tæknilega aðstoð við þróun hugmynda og vöruþróun.

Hönnun og ráðgjöf

Á grundvelli áralangrar reynslu í hönnun og framleiðslu á rafmagnstöflum og náinni samvinnu við viðurkennda framleiðendur getur Samey skilað fyrsta flokks lausn fyrir allar gerðir og stærðir raforkukerfa á lágmarkstíma. Með fullkomnum hönnunarhugbúnaði, reyndum hönnuðum og skjótri og áreiðanlegri afgreiðslu íhluta, getur Samey boðið lausn sem fullnægir þínum þörfum. Við leysum vél- og rafræn verkefni til enda og skilum þeim prufukeyrðum hjá kaupanda. Lausnir okkar eru skjalfestar með góðum teikningum og lýsingum til að tryggja öruggan rekstur. Okkar reynsla og þekking nýtist best ef við erum með frá fæðingu hugmyndar til fullunnins verks. Aðgangur viðskiptavinarins að reynslu okkar og þekkingu getur sparað honum verulegar fjárhæðir og komið í veg fyrir dýr mistök.

Heildarlausn frá hönnun til gangsetningar

Samey hefur á árangursríkan hátt aðstoðað fjölda fyrirtækja við að auka framleiðni og rekstrarhagkvæmni með skilvirkum sjálfvirknilausnum.

Við bjóðum heildarlausnir, sniðnar að þínum þörfum, allt frá hönnun til gangsetningar. Við byggjum lausnir okkar á notendavænu viðmóti.

Við leggjum áherslu á kennslu og þjálfun starfsmanna, en það tryggir hámarksarðsemi og góðan árangur frá uppsetningu.

Helstu birgjar og vöruflokkar

Fanuc Robotics - LogoFanuc Robotics

GE Fanuc - LogoGE Fanuc

Yokogawa - LogoYokogawa

Weidmuller - LogoWeidmuller

Sick - LogoSick

Control Techniques - LogoEmerson - Control Techniques

Puls - LogoPuls Power

Cubic - LogoCubic

Circutor - LogoCircutor

Inor - LogoInor

E+E Elektronik - LogoE + E - Elektronik

Shimaden - LogoShimaden

Trafag - LogoTrafag

ESA - LogoESA

Unitronics - LogoUnitronics

Red Lion - LogoRed Lion

K-Tek - LogoK-Tek

Wachendorff - LogoWachendorff

Fairford Electronics - LogoFairford Electronics

Citect - LogoCitect

IFM - LogoIfm

Kobold - LogoKobold

SMC - LogoSMC

GF Signet - Logo+GF+ Signet

ASM - LogoASM

Sixnet - LogoSixnet